fbpx
Mánudagur 16.febrúar 2026
433Sport

Settur í bann og sektaður um 12 milljónir

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 17:30

Pape Thiaw. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pape Thiaw, landsliðsþjálfari Senegal, hefur verið settur í fimm leikja bann af Knattspyrnusambandi Afríku eftir óeirðir sem brutust út í úrslitaleik Afríkukeppninnar gegn Marokkó.

Auk þess var Thiaw sektaður um það sem nemur um 12 milljónum íslenskra króna fyrir óíþróttamannslega framkomu og fyrir að skaða orðspor knattspyrnunnar.

Úrslitaleikurinn, sem fór fram í Rabat 18. janúar og endaði með 1-0 sigri Senegal, fór úr böndunum þegar leikmenn Senegal yfirgáfu völlinn eftir að Marokkó fékk vítaspyrnu í uppbótartíma. Thiaw skipaði leikmönnum sínum að ganga af velli í mótmælaskyni, en leikurinn tafðist um tæpar 20 mínútur áður en Sadio Mane sannfærði samherja sína um að snúa aftur.

Vítaspyrna Brahim Diaz var varin af Edouard Mendy og flautað var til leiksloka skömmu síðar. Senegal tryggði sér sigurinn með marki Pape Gueye í framlengingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ferill Grealish gæti tekið óvænta stefnu í sumar

Ferill Grealish gæti tekið óvænta stefnu í sumar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Fyrrverandi starfsmaður Manchester United gagnrýnir leikmann liðsins – Segir hann hafa gjörbreyst með tímanum

Fyrrverandi starfsmaður Manchester United gagnrýnir leikmann liðsins – Segir hann hafa gjörbreyst með tímanum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Fær hressilega á baukinn – Hlutirnir farið úr öskunni í eldinn frá því hann yfirgaf United

Fær hressilega á baukinn – Hlutirnir farið úr öskunni í eldinn frá því hann yfirgaf United
433Sport
Í gær

Fær gæsahúð við að hugsa til baka – „Ólýsanleg tilfinning“

Fær gæsahúð við að hugsa til baka – „Ólýsanleg tilfinning“
433Sport
Í gær

Sjáðu markið – Ronaldo skoraði í endurkomu sinni eftir verkfallið

Sjáðu markið – Ronaldo skoraði í endurkomu sinni eftir verkfallið
433Sport
Í gær

Áfall í herbúðum Newcastle

Áfall í herbúðum Newcastle