

Ruben Amorim, stjóri Manchester United, virðist hafa engan áhuga á að losa miðjumanninn Kobbie Mainoo á næsta ári.
Mainoo er uppalinn hjá United en hefur ekki átt fast sæti í liðinu eftir að Amorim tók við undir lok 2024.
Hann hefur verið orðaður við önnur félög á árinu en Amorim vonar að Englendingurinn sýni þolinmæði frekar en að heimta sölu.
,,Kobbie Mainoo verður framtíð Manchester United. Hann þarf bara að bíða eftir tækifærinu – allt getur breyst á tveimur dögum,“sagði Amorim.
,,Ef við fáum ekki annan leikmann inn þá er erfitt að sleppa honum. Okkur vantar mannskap frekar en annað.“