fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Dómarinn vonaðist eftir því að Ronaldo myndi klúðra vítinu – ,,Augljóst að ég gerði mistök“

Victor Pálsson
Föstudaginn 26. desember 2025 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Howard Webb, fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni, hefur tjáð sig um atvik sem gerðist í leik Tottenham og Manchester United árið 2009 er þessi lið áttust við á Old Trafford.

Tottenham komst í stöðuna 2-0 í þessum leik áður en Webb ákvað að dæma vítaspyrnu á Heurelho Gomes, markvörð Tottenham, fyrir brot á Michael Carrick.

Webb ræddi þetta augnablik í samtali við Athletic en hann áttaði sig um leið að mistök hefðu verið gerð og að vítaspyrnudómurinn væri rangur.

Á þessum tíma gátu dómarar hins vegar ekki notast við VAR og steig Cristiano Ronaldo á punktinn og skoraði. Man Utd vann leikinn að lokum 5-2.

Webb viðurkennir að hann hafi vonast eftir því að Ronaldo myndi klúðra spyrnunni svo vítaspyrnan myndi ekki hafa áhrif á gang mála.

,,Það sem ég hugsa fyrst um er í leik þar sem ég vissi að ég hefði gert mistök. Þetta var leikur Totttenham og Manchester United á Old Trafford 2009,“ sagði Webb.

,,Ég sá Michael Carrick ná fyrst til boltans og svo kom markmaðurinn inn í hann. Þetta virkaði auðvelt víti að dæma. Ég bjóst við þessum venjulegu kvörtunum en ekki þessu bulli sem fylgdi.“

,,Það var augljóst um leið að ég hefði gert mistök. Það var eitthvað meira þarna. Ég þurfti að standa með ákvörðuninni og minni tilfinningu. Ég vonaðist bara eftir að Ronaldo myndi klúðra vítinu en hann gerði það ekki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Það skemmtilegasta sem Rooney hefur upplifað frá því ferlinum lauk

Það skemmtilegasta sem Rooney hefur upplifað frá því ferlinum lauk
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Lykilmaður óvænt á förum frá Akureyri – Segja að ágreiningur hafi komið upp

Lykilmaður óvænt á förum frá Akureyri – Segja að ágreiningur hafi komið upp
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Tíu knattspyrnumönnum meinað að mæta til leiks í Bandaríkjunum

Tíu knattspyrnumönnum meinað að mæta til leiks í Bandaríkjunum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga innan Englands

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga innan Englands
433Sport
Í gær

Dramatík í Newcastle – Ótrúlegur leikur í Madríd

Dramatík í Newcastle – Ótrúlegur leikur í Madríd