

Gabriel Jesus var augljóslega mjög tilfinningaþrunginn eftir endurkomu sína í 3-0 sigri Arsenal gegn Club Brugge á miðvikudagskvöldið, en Brasilíumaðurinn lék sinn fyrsta leik eftir 332 daga fjarveru vegna alvarlegra meiðsla á hné.
Jesus kom inn á á 62. mínútu, átti skot í slá og sýndi strax gamalkunnan kraft. Hann átti meira að segja fleiri snertingar en Viktor Gyökeres sem byrjaði leikinn í fremstu víglínu.
Framherjinn meiddist illa í tapinu gegn Manchester United í bikarnum í janúar og gekkst síðar undir aðgerð á krossbandi. Á þeim tíma var hann í fantaformi, með fimm mörk í tveimur leikjum.
„Fyrsta hugsunin mín var: ‚Af hverju?‘“ sagði Jesus.

„Ég spurði mig þess á hverjum degi fyrstu vikurnar. Ég var loksins farinn að spila vel og skora mörk, og svo gerist þetta. En svo áttaði ég mig á að ég þurfti að nálgast Jesú, nálgast Guð, lesa Biblíuna. Það hjálpaði mér að halda í trúna og vita að ég gæti snúið sterkari til baka.“
Jesus hefur áður farið í hnéaðgerð með Arsenal, en hann missti af HM 2022 vegna meiðsla. Þrátt fyrir áskoranir trúir hann að besta útgáfan af honum sé enn ókomin.
„100 prósent,“ sagði hann. „Að hreyfa mig svona eftir 11 mánuði gerir mig stoltan. Auðvitað hefði ég viljað skora, en það mikilvægasta er að ég er kominn aftur.“