
Real Madrid hefur verið í vandræðum undanfarin og hefur Barcelona hirt toppsætið. Nokkur pressa er farin að myndast á Xabi Alonso, nýjum stjóra liðsins, sér í lagi vegna frétta um ósætti við leikmenn.
Samkvæmt spænskum miðlum eru allt að sex leikmenn óánægðir með Alonso, þar á meðal Fede Valverde, Vinicius Junior, Rodrygo, Brahim Diaz, Endrick og Ferland Mendy. Þá er Eduardo Camavinga sagður óviss með sína stöðu og hlutverk.
Mesta vandamálið og ágreiningurinn er í kringum Vinicius, sem neitar að skrifa undir nýjan samning. Sá sem nú er í gildi rennur út eftir næstu leiktíð.
Hins vegar eru nokkrir leikmenn sagðir styðja Alonso af fullum krafti, þar á meðal Dean Huijsen, Alvaro Carreras, Thibaut Courtois, Arda Guler og Kylian Mbappe.