

Egill skrifaði stutta færslu á Facebook á dögunum sem vakti þó gríðarlega athygli. Þegar þetta er skrifað hafa um 150 manns skrifað athugasemd við færsluna þar sem Egill sagði eftirfarandi:
„Ég veit ekki með ykkur en mér finnst jólalög í miðjum nóvember vera of mikið af því góða. (Sit á veitingastað og heyri skelfilega soul-útgáfu af Heims um ból.)“
Það er óhætt að segja að flestir hafi tekið undir með Agli þó einn og einn hafi verið honum ósammála.
„Það er nóg að byrja þegar aðventan gengur í garð,“ segir einn og eru fleiri þeirrar skoðunar að miða eigi við aðventuna. „Sammála, fínt að miða við fyrstu helgina í aðventu,“ segir annar. „Þetta er komið út í algjöra dellu,“ segir einn.
„Það er farið að teygjast ansi mikið úr jólunum, í allar áttir,“ segir annar og bæta aðrir við að lög eins og Heims um ból eigi helst að heyrast fyrst á aðfangadagskvöld – þegar sjálf jólin ganga í garð.
„Hjartanlega sammála. Jólalög í desember og Heims um ból alls ekki fyrr en í jólavikunni sjálfri,“ segir í einni athugasemd.
Það eru þó ekki allir sammála Agli.
„Jólin eru góð, jólalög í nóvember er í lagi, njótum bara, hættum að kvarta yfir öllu,“ segir einn og annar bætir við: „Vertu bara heima hjá þér þá, ef þú þolir þetta ekki.“
Marta María Winkel, ritstjóri Smartlands á mbl.is, er einnig hjartanlega ósammála Agli.
„Æji!! Ekki vera svona fúll elsku hjarta,“ sagði Marta. Því svaraði Egill svona: „Þvert á móti vil ég gleðjast og vera hress og ekki hlusta á þennan “andlega seim” í tíma og ótíma.“
Hvað segja lesendur? Hvenær á að byrja að spila jólalögin?