fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Gunnar kallar eftir breytingum í samstarfi skóla og íþrótta á Íslandi – „Ég er að tala um ef Kalli brókar þrjá inni á baði, auðvitað á það ekki að fá viðgangast“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 11. nóvember 2025 18:30

Gunnar Birgisson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Birgisson, íþróttafréttamaður á RÚV og yngri flokka þjálfari kallar eftir því að skólastarf og íþróttastarf vinni betur saman. Hann telur að þeir einstaklingar sem haga sér illa í grunnskóla eigi ekki að fá að komast upp með slíkt.

Gunnar var til viðtal í hlaðvarpinu Dr. Football þar sem rætt var um yngri flokka starf í fótbolta.

Talið barst að þjálfurum og hvað er hægt að gera betur. „Þjálfarar voru þeir sem maður leit upp til, mér finnst því synd hversu illa skólastarf vinnur með íþróttastarf. Þarna þarf að rífa í handbremsu,“ sagði Gunnar í Dr. Football.

Hann segir að skólar eigi að vera í betra samstarfi við fótboltann, þannig sé hægt að taka á slæmri hegðun í skólanum.

„Ef þú ert strákur eða stelpa í A-liði, þú ert ítrekað að standa þig illa í skóla og kemur illa fram við samnemendur þína. Þú ert svo alltaf eins og engill á fótboltaæfingu, það verða að vera afleiðingar af því að þú ert ekki sama persónan í skólanum. Skóli og íþróttir, ef við tökum svefn í burtu eru þetta 80 prósent af því sem krakkar gera.“

„Ef þú kemur ekki nógu vel fram í skóla, þá á það að bitna á þér í íþróttastarfi. Alveg 100 prósent, þarna gætu skólar og íþróttafélög unnið saman að bættri niðurstöðu fyrir báða aðila.“

Gunnar segir þetta ekki snúast um það að einstaklingur sé slakur námsmaður, heldur að hann leggi sig fram og komi vel fram við fólk.

„Þetta snýst um að leggja sig fram og koma vel fram, ég er ekki að biðja um einkunnir úr prófum. Ég er bara að tala um ef Kalli brókar þrjá inni á baði, auðvitað á það ekki að fá viðgangast. Svo kemur hann á æfingu og allir klappa fyrir Kalla.“

„Ef einstaklingur er lélegur námsmaður, ef hann er bara það og þannig er það bara. Ef hann er líka með dónaskap við samnemendur, við kennara og annað slíkt. Að íþróttastarfið fái að vita það, þetta getur verið vikulegur tölvupóstur eða símtal. Að ekki sé verið að verðlauna þessa hegðun þegar komið er á íþróttasvæðið, krakkar vita að ef þetta bitnar á þeim íþróttalega, að þá hætta þeir þessu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Það skemmtilegasta sem Rooney hefur upplifað frá því ferlinum lauk

Það skemmtilegasta sem Rooney hefur upplifað frá því ferlinum lauk
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Lykilmaður óvænt á förum frá Akureyri – Segja að ágreiningur hafi komið upp

Lykilmaður óvænt á förum frá Akureyri – Segja að ágreiningur hafi komið upp
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Tíu knattspyrnumönnum meinað að mæta til leiks í Bandaríkjunum

Tíu knattspyrnumönnum meinað að mæta til leiks í Bandaríkjunum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga innan Englands

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga innan Englands
433Sport
Í gær

Dramatík í Newcastle – Ótrúlegur leikur í Madríd

Dramatík í Newcastle – Ótrúlegur leikur í Madríd