Haraldur Ólafsson, fatlaður maður sem gerð var heimildarmyndin „Halli sigurvegari“, er látinn 69 ára að aldri.
Árið 2016 var gerð heimildarmynd í tilefni af því að fjörutíu ár voru liðin frá stofnun Landsamtakanna Þroskahjálpar. Í myndinni, sem Páll Kristinn Pálsson gerði, var fjallað um hinn einstaka Harald og lífshlaup hans. En hún var meðal annars sýnd í Bæjarbíói og á RÚV.
Haraldur var hreyfihamlaður maður sem var á barnsaldri vistaður á Kópavogshæli. Þar dvaldist hann fram á fullorðinsár. Hann hafði ekki fullan mátt í útlimum og hafði ekki fulla stjórn á hreyfingunum. Vegna þessa var hann talinn greindarskertur þó að ekkert benti til þess.
„Kerfið dæmdi hann úr leik og ákvað að hann gæti ekkert lært. En Halli er hæfileikaríkur og býr yfir óbugandi þrautseigju og kjarki, lífsvilja og skemmtilegheitum,“ segir á vef samtakanna.
Fluttist hann af Kópavogshæli og stundaði nám við rafiðnaðarbraut Iðnskólans í Reykjavík. Einnig tók hann bílpróf sem breytti lífi hans mikið.
Haraldur lést á Hrafnistu þann 3. október. Útförin fer fram í Hafnarfjarðarkirkju þann 14. október klukkan 15.