fbpx
Fimmtudagur 08.janúar 2026
Eyjan

Segja Finnbjörn tala af „yfirborðskenndum hætti um grafalvarleg vandamál“

Eyjan
Fimmtudaginn 2. október 2025 14:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Eflingar stéttarfélags  hefur sent frá sér ályktun þar sem harðorðar athugasemdir eru gerðar við málflutning Finnbjörns Hermannssonar, forseta ASÍ, í tilefni af niðurstöðu könnunar sem birt var í gær og leiddi ljós að 70% launafólks nái endum saman á meðan 30% launþega glími við verulegar erfiðar aðstæður.

Finnbjörn gerði stöðu þessara 30% hóps, sem margir innflytjendur tilheyra, að umtalsefni sínu og sagði margt annað útskýra stöðu hans en launamun. Til að mynda íslenskukunnátta og skortur á tengslaneti sem þýðir að þessi hópur er útsettari fyrir láglaunastörfum en aðrir þrátt fyrir góða menntun. Við þennan málflutning eru forsvarsmenn Eflingar, með Sólveigu Önnu Jónsdóttur í fararbroddi, ósátt og segja að Samtök atvinnulífsins hljóti að fagna honum.

Segja að Samtök atvinnulífsins hljóta að fagna orðum Finnbjörns

„Stjórn Eflingar gagnrýnir vitundarleysi um eðli stéttaskiptingar sem birtist í ummælum forseta ASÍ. Í stað þess að viðurkenna að erfið staða verkafólks á íslenskum vinnumarkaði er tilkomin vegna kerfislægra þátta, líkt og kröfu atvinnurekenda um ódýrt vinnuafl til að knýja áfram hjól atvinnulífsins, leitar hann í yfirborðskenndar og villandi greiningar. Samtök atvinnulífsins hljóta að fagna skoðunum forseta ASÍ sem leysir atvinnurekendur undan ábyrgð á ólíðandi ástandi og varpar henni þess í stað á opinber kerfi og einstaklingsbundna þætti, eins og menntunarstig,“ segir í ályktun Eflingar.

Þá segir í ályktuninni að Finnbjörn sé greinilega ekki meðvitaður um að „markmið þeirra atvinnurekenda sem hafa aðflutt fólk í vinnu er að hámarka gróða sinn á kostnað launa vinnuaflsins.“

„Til þess er þaulreyndum og markvissum aðferðum beitt: Kerfi eru útbúin sem gera mikinn innflutning á vinnuafli mögulegan til þess að halda launum verkafólks niðri. Verkafólk er látið vinna á óeðlilega miklum vinnuhraða til að hámarka arðsemi fyrirtækjanna. Verkafólk er látið vinna við mikla undirmönnum til að lækka launakostnað, og fólki er sagt upp ef að það gerir sig líklegt til að leita leiða til að bæta aðstæður sínar og vinnufélaga sinna á vinnustað.“

Gagnrýna að tekið sé undir málflutninga menntastétta

Þá er fullyrt að félög háskólamenntaðra leggi sitt af mörkum til að viðhalda ástandinu með því að láta sem eina leiðin til þess að öðlast efnahagslegt öryggi sé að feta menntaveginn.

„Stjórn Eflingar gagnrýnir að forseti ASÍ skuli með afstöðu sinni taka undir málflutning BHM og annara fulltrúa menntastéttanna, málflutning sem notaður er markvisst til að beina sjónum almennings frá afleiðingum þess arðránskerfis sem vinnuaflið þarf að búa við.  Stjórn Eflingar lýsir yfir vonbrigðum yfir því að málflutningur samninganefnda félagsins og þess hugrakka verkafólks sem leitt hefur kjarabaráttu almennings á Íslandi með verkfallsaðgerðum á höfuðborgarsvæðinu skuli ekki hafa náð eyrum forseta ASÍ. Sú skylda hvílir á forystu ASÍ að horfast heiðarlega í augu við þann mikla vanda sem verkafólk stendur frammi fyrir vegna stéttaskiptingar og misskiptingar í íslensku þjóðlífi,“ segir ennfremur í ályktuninni.

Ályktunina má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur Egilsson: Svefnherbergisvandamál hrjá Rússa eins og aðra

Vilhjálmur Egilsson: Svefnherbergisvandamál hrjá Rússa eins og aðra
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Fréttastofujól

Óttar Guðmundsson skrifar: Fréttastofujól
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Vilhjálmur Egilsson: Evrópusambandið snýst um frið, lýðræði og mannréttindi, ekki bara peninga

Vilhjálmur Egilsson: Evrópusambandið snýst um frið, lýðræði og mannréttindi, ekki bara peninga
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Trump byltingin og planið

Þorsteinn Pálsson skrifar: Trump byltingin og planið
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Guðrún Karls Helgudóttir: Konurnar verða síður prestar – eru hins vegar fleiri

Guðrún Karls Helgudóttir: Konurnar verða síður prestar – eru hins vegar fleiri
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Guðrún Karls Helgudóttir: Biblían er mest spennandi bók sem er til

Guðrún Karls Helgudóttir: Biblían er mest spennandi bók sem er til