fbpx
Sunnudagur 27.júlí 2025
Fréttir

Nýjar upplýsingar um bensínþjófagengið – „Ég stoppa hann og spyr af hverju hann stal frá okkur“

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 27. júlí 2025 12:00

Tveir menn sem tóku vatnsbrúsana. Mynd/aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður sem rekur gluggaþvottafyrirtæki segist kannast við gengið sem stal hundruð lítrum af dísilolíu úr vörubílum á Héðinsgötu. Þeir hafi notað stolna brúsa frá honum við verknaðinn. Um sé að ræða fjölmennt gengi.

Fyrirtækjaeigandinn hafði samband við DV eftir að birtar voru fréttir af bíræfnum dísilolíuþjófnaði á plani flutningafyrirtækisins Fraktlausna við Héðinsgötu í Reykjavík. Telur hann að um sé að ræða sömu menn og stálu brúsum frá honum fyrir skemmstu.

Fann bílnúmerið

Brúsunum var stolið þann 8. júlí síðastliðinn. Segir hann að mennirnir hafi tekið um tíu tuttugu lítra vatnsbrúsa. En þetta eru brúsar sem fyrirtækið þarf á að halda við að þrífa glugga.

„Morguninn eftir finnum við örfáa brúsa og þá förum við að skoða öryggismyndavélar,“ segir hann. Þá hafi verknaðurinn komið í ljós.

Brúsarnir hafa sennilega verið notaðir við dísilolíuþjófnaðinn. Mynd/aðsend

Fór hann í rannsóknarvinnu og notaði bílnúmerið á Skoda bíl sem notaður var við þjófnaðinn. Komst hann að því að téðri bifreið væri gjarnan lagt við ákveðna götu í miðborg Reykjavíkur, oft með 2 Wolt töskum inn í. Menn sem bílinn keyrðu væru til heimilis í kjallaraíbúð þar nálægt.

Stoppaði þjóf á rauðu ljósi

Fór svo að fyrirtækjaeigandinn ósátti bauð þeim birginn. „Svo er ég út að borða og er stopp á gatnamótum á rauðu og sé Skodann. Ég stoppa hann og spyr af hverju hann stal frá okkur,“ segir hann.

Hafi hann fengið símanúmerið frá þjófnum. Einnig loforð um að brúsunum yrði skilað degi seinna. Það gekk hins vegar ekki eftir og var slitið á samskiptin.

Sjá einnig:

Bíræfnir þjófar stálu nokkur hundruð lítrum af díselolíu – „Lögreglan hefur ekki áhuga á að stoppa svona lið“ – Myndband

Þykir honum ljóst að brúsarnir hafi verið notaðir við dísilolíuþjófnaðinn á Héðinsgötu sem DV greindi frá í gær.

Bera gaskúta og íþróttatöskur um miðjar nætur

Fyrirtækjaeigandinn segist hafa leitað upplýsinga um þessa bíræfnu þjófa. Hafi hann fengið skilaboð frá fólki sem segi hegðun þeirra grunsamlega.

Hegðun mannanna þykir grunsamleg. Mynd/aðsend

Hafi þeir sést á ferli um nætur, oft eftir klukkan 3:00. Eru þá oftar en ekki að bera gaskúta, bensínbrúsa og stórar og þungar íþróttatöskur á milli bíla. Sé um að ræða stóran hóp manna. Það er að minnsta kosti fimmtán manns.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt