Igle Tare, nýr yfirmaður knattspyrnumála AC Milan, viðurkennir að félagið sé í leit að nýjum framherja og er ekki öruggt að Santiago Gimenez verði aðalmaðurinn næsta vetur.
Gimenez var keyptur til Milan fyrir 32 milljónir evra í janúarglugganum en skoraði aðeins sex mörk í 19 leikjum seinni hluta tímabils.
Tare segir að Milan hafi enn trú á þessum 24 ára framherja sem kom frá Feyenoord en sæti hans í liðinu er ekki öruggt fyrir næsta tímabil.
,,Við höfum fulla trú á honum. Gimenez er mjög góður leikmaður og það sem hann hefur gert er eðlilegt miðað við leikmann sem kemur úr annarri deild,“ sagði Tare.
,,Hann kemur hingað úr hollensku deildinni, við erum að leita að öðrum framherja sem er meiri nía og býr yfir þannig eiginleikum,“
,,Við þurfum að fá inn gamaldags framherja, einhvern sem lætur vita af sér í teignum og getur skorað mörkin þar. Við höfum saknað Olivier Giroud.“