fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fréttir

Maðurinn sem lifði af flugslysið segist vera þjakaður af sektarkennd

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. júní 2025 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn fertugi Vishwash Ramesh, sem var sá eini sem komst lífs af úr flugslysi Air India á dögunum, segist vera á góðum batavegi eftir slysið, líkamlega að minnsta kosti.

Ramesh er í viðtali við breska blaðið The Sun þar sem hann lýsir slysinu og líðan sinni. Í viðtalinu segist hann vera þjakaður af sektarkennd vegna dauða bróður síns, Ajay, sem var með honum í vélinni.

Í viðtalinu kemur fram að hann hafi reynt að fá tvö sæti hlið við hlið í röð 11 við neyðarútgang vélarinnar. Þegar hann bókaði flugið og valdi sæti var hluti raðarinnar upptekinn og þurftu þeir bræður því að sitja sitthvoru megin við ganginn – Ramesh í sæti 11A upp við neyðarútganginn en Ajay akkúrat hinum megin.

Ramesh tókst á einhvern ótrúlegan hátt að lifa slysið af og skríða út um gat í braki Boeing 787-Dreamliner vélarinnar. Ajay lést hins vegar í slysinu ásamt 240 öðrum, farþegum og starfsfólki vélarinnar.

„Ef við hefðum setið saman hefðum við kannski báðir lifað þetta af,“ segir Ramesh sem er kvæntur faðir eins barns og búsettur á Bretlandseyjum.

„Ég missti bróður minn fyrir framan augun á mér. Ég hugsa stöðugt: „Af hverju gat ég ekki bjargað honum?“ Það er kraftaverk að ég lifði. Ég er líkamlega í lagi en það er hræðilegt að hafa ekki getað bjargað Ajay.“

Ramesh er nú að jafna sig eftir slysið í heimabæ sínum, Diu, á vesturströnd Indlands. Hann og Ayjay ráku fiskveiðifyrirtæki með tveimur bátum sem þeir erfðu frá föður sínum. Þegar monsúntímabilið hefst stöðvast fiskveiðarnar og hugðust þeir fara til Englands þar sem Ajay er búsettur ásamt konu og fjögurra ára syni í Leicester.

Ramesh var útskrifaður af sjúkrahúsi á þriðjudag og er hann nú í faðmi eiginkonu sinnar, sonar og yngri bróður, Nayan. Í umfjöllun The Sun kemur fram að margir íbúar Diu séu sorgmæddir þessa dagana en alls létust 14 íbúar bæjarins í fyrrnefndu flugslysi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

„Hlægilegar“ Trump-umbætur – Skeikar miklu

„Hlægilegar“ Trump-umbætur – Skeikar miklu
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Húsfélag við Hallgerðargötu í hart eftir að borgin opnaði óvænt íbúðakjarna fyrir geðfatlaða í húsinu – Ungbarnaleikskóli á sama stað

Húsfélag við Hallgerðargötu í hart eftir að borgin opnaði óvænt íbúðakjarna fyrir geðfatlaða í húsinu – Ungbarnaleikskóli á sama stað