Um fátt hefur verið meira rætt en þyngdarstjórnunarlyfið Ozempic síðustu mánuði og hafa erlendir fjölmiðlar greint frá margskonar aukaverkunum, misalvarlegum þó. Þannig hefur verið rætt um „Ozempic fætur“, „Ozempic tennur“ og „Ozempic andlit.“. Tallsverða athygli vakti síðan umfjöllun í síðustu viku þar sem bresk kona fjallaði um vandræði sín varðandi glímuna við „Ozempic píku“ sem lýsti þér þannig að ört þyngdartapið varð til þess að kynfærasvæðið varð slappara og það hafði neikvæð áhrif á sjálfstraust hennar og kynlíf.
Ef eitthvað er að marka umfjöllun New York Post virðast einhverjir karlmenn upplifa jákvæðari aukaverkanir. Í umfjöllun miðilsins kemur fram að fjöldi karlmanna hafi greint frá því í á samfélagsmiðlum að þeir hafi tekið eftir sýnilegri stækkun á kynfærum sínum eftir notkun lyfsins. Þeir lýsa þessu sem óvæntum og furðulegum aukaverkunum sem hafa jafnvel bætt sjálfsmynd þeirra og sjálfstraust.
Umræðan hófst meðal annars á samfélagsmiðlinum Reddit, þar sem notendur deildu því að eftir margra mánaða notkun á Ozempic eða Tirzepatide (sem einnig er notað við offitu) hafi þeir tekið eftir því að limur þeirra virtist stærri en áður. Einn þeirra greindi frá því að hann hefði bætt við sig um 2,5 sentímetrum og annar lýsti fjögurra sentímetra lengingu eftir sjö mánaða meðferð.
Þó fullyrðingarnar hafi vakið mikla athygli, benda læknar og sérfræðingar á að líklega sé um að ræða sjónræna blekkingu frekar en líffræðilega stækkun. Þegar einstaklingur missir mikið af líkamsfitu – sérstaklega fitu sem safnast kringum lífbeinið – getur meira af limnum orðið sýnilegt. Einnig getur bætt blóðflæði og almenn heilsubót haft áhrif á virkni og útlit kynfæra.
„Þetta er ekki raunveruleg líffærafræðileg stækkun, heldur breyting á því hvernig líkaminn lítur út eftir verulegan fitumissi,“ segir einn læknir sem New York Post ræddi við.
Hvað sem blekkingunni líður þá er er ljóst að aukaverkunin eykur sjálfstraust hnarreistra karlmanna.