
Kona nokkur hefur fengið formlega afsökunarbeiðni frá skammtímaleigumiðluninni Airbnb eftir að leigusali lagði fram falska bótakröfu. Leigusalinn hafði krafið konuna um tvær milljónir í bætur fyrir meintar skemmdir en konan segir að myndirnar sem áttu að sýna tjónið séu falsaðar.
Airbnb segist nú vera að skoða verkferla og hefur endurgreitt konunni gistinguna. The Guardian greinir frá.
Konan, sem er búsett í London, leigði sér tveggja herbergja íbúð á Manhattan í New York. Þar ætlaði hún að dvelja í 10 vikur á meðan hún væri við nám í Bandaríkjunum. Hún upplifði sig þó ekki örugga á svæðinu og ákvað að stytta leigutímann niður í sjö vikur. Konan telur í dag að leigusalanum hafi mislíkað þetta.
Skömmu eftir að hún skilaði íbúðinni af sér fékk hún skilaboð þar sem leigusalinn hélt því fram að hún hefði valdið 2 milljón króna tjóni á íbúð og innbúi. Meðal annars var henni gert að sök að hafa pissað í rúmdýnu og eyðilagt sófaborð, ryksuguvélmenni, sófa, örbylgjuöfn, sjónvarp og loftkælingu.
Þessu til sönnunar lagði hann fram myndir sem hann sagði sanna meint tjón.
Konan neitaði fyrir þetta og kannaðist ekkert við meintar skemmdir. Hún segist hafa skilið við íbúðina í sama ástandi og hún tók við henni og aðeins fengið tvo gesti til sín á leigutíma. Þegar konan skoðaði myndirnar af þessu meinta tjóni sá hún að maðkur var í mysunni. Hún sýndi Guardian mynd af sófaborðinu sem hún átti að hafa skemmt en þar virðist sprungu hafa verið bætt á mynd með gervigreind eða myndvinnsluforriti til að láta það líta út fyrir að vera ónýtt.
Telur konan líklegt að leigusalinn sé að reyna að ná sér niður á henni fyrir að hafa stytt dvölina um þrjár vikur.
Málið endaði á borðinu hjá Airbnb sem krafðist þess fyrst að konan greiddi 900 þúsund krónur í bætur til leigusalans. Konan áfrýjaði þessari niðurstöðu.
„Ég tilkynnti þeim að ég gæti lagt fram vitnisburð frá sjónarvotti sem var með mér þegar ég skilaði íbúðinni af mér og gat vitnað til um ástandið sem eignin var í: hrein, óskemmd og allt í röð og reglu.“
Konan sýndi eins fram á að leigusalinn hefði átt myndirnar sem hún telur í raun að Airbnb hefði átt að sjá undir eins.
Eftir að konan leitaði til The Guardian reyndi Airbnb að draga í land. Fyrst buðu þeir henni rúmlega 80 þúsund króna afslátt í formi inneignar. Síðan buðu þeir henni sömu fjárhæð í endurgreiðslu. Loks buðu þeir henni fulla endurgreiðslu og tóku niður neikvæða umsögn sem leigusalinn hafði gefið henni á vefsíðu Airbnb. Leigusalinn hefur nú fengið áminningu og verður settur í bann ef hann brýtur aftur af sér.