fbpx
Mánudagur 02.júní 2025
Pressan

Suðurkóresk yfirvöld neita því að rætt hafi verið um brottflutning bandarísks herliðs

Pressan
Föstudaginn 30. maí 2025 06:30

Það er mikil gæsla á landamærum Kóreuríkjanna. Mynd: Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Suðurkóreski varnarmálaráðherrann segir það ekki rétt að viðræður hafi farið fram á milli suðurkóreskra og bandarískra yfirvalda um fækkun í bandaríska herliðinu í Suður-Kóreu en þar eru 28.500 bandarískir hermenn staðsettir.

The Wall Street Journal skýrði nýlega frá því að stjórn Donald Trump væri að „íhuga að flytja mörg þúsund hermenn frá Suður-Kóreu“. Miðillinn vitnaði í ónafngreinda heimildarmenn sem sögðu að þessi umræða hefði átt sér stað og varnarmálaráðuneytið hefði unnið að áætlun um að flytja 4.500 hermenn til annarra herstöðva við Indlandshaf og Kyrrahaf, þar á meðal Gvam.

Í yfirlýsingu frá suðurkóreska varnarmálaráðuneytinu kemur fram að það sé staðráðið í að vinna náið með Bandaríkjamönnum við að halda uppi öflugri viðveru herliðs til að fæla Norður-Kóreu frá árásum.

Bandaríkin og Suður-Kórea sömdu á síðasta ári um skiptingu kostnaðar við varnir Suður-Kóreu og er samningurinn til fimm ára. Donald Trump hefur gefið í skyn að hugsanlega verði rætt um skiptingu kostnaðar, vegna veru bandaríska herliðsins í Suður-Kóreu, í tengslum við viðræður um viðskipti og tolla. Suðurkóreskir embættismenn segja að ræða verði þessi mál óháð hvort öðru.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Nú verður hart tekið á þessum ósið hjá farþegum

Nú verður hart tekið á þessum ósið hjá farþegum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Læknir dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir ævintýraleg tryggingasvik – Greindi sjúklinga ranglega með liðagigt til að fjármagna lúxuslífsstíl

Læknir dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir ævintýraleg tryggingasvik – Greindi sjúklinga ranglega með liðagigt til að fjármagna lúxuslífsstíl