fbpx
Sunnudagur 01.júní 2025
Fókus

Erna Kristín bætti nýrri rós í hnappagatið – „Í dag er ég þreytt, en líka stolt“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 5. maí 2025 18:30

Erna Kristín Stefánsdóttir. Mynd: Instagram.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erna Kristín Stefánsdóttir, guðfræðingur, sem vinsæl er á samfélagsmiðlum undir nafninu Ernuland, bætti nýlega nýrri rós í hnappagatið þegar hún útskrifaðist sem markþjálfi.

„Æ það er eitthvað við þetta litla líf, sem er svo „bitter sweet“ það kennir manni ýmislegt, stundum er það óþarflega harkalegt og minnir á fjallgöngu þar sem þú ert með stein í skónum allan tímann og stundum er það eins nýþeyttur rjómi og heitar vöfflur með þínu besta fólki. Við fáum víst lítið um það að segja og eina sem við getum gert er að standa í lappirnar og hætta að bíða eftir því að einhver komi að bjarga þér, það er trúlega „bitter“ kaflinn í vegferðinni,“

segir Erna Kristín í færslu þar sem hún deilir mynd af sér með útskriftarskírteinið og annarri af sér með samnemendum sínum.

Mynd: Instagram.

Segir hún síðustu ár svo sannarlega hafa reynt á, en hún hafi lært margt á þeim tíma.

„Síðustu ár hafa einmitt verið meira eins og þessi fjallganga, með stein í skónum og ég gæti gengið svo langt að bæta hælsæri á það, norðanátt með úrkomu á köflum….en í svona þrautagöngu lærir maður ó svo mikið, jafnvel aðeins meira en maður hafði áhuga á, en það er óhjákvæmilegt því það sem gerist er að maður sér umhverfið öðruvísi, fólkið í kringum sig, framtíðina, það er margt sem verður skýrara og því geta fylgt vaxtaverkir sem maður er mis undirbúinn undir.

En þá er það sæti parturinn af vegferðinni og það er það sem situr eftir. Þrautseigjan. Þögnin. Þakklætið. Trúin á sig eftir að hafa halda áfram með steininn í skónum og blæðandi hælsæri þá lærði ég að mæta sjálfri mér. Halda mér uppi. Stundum með seiglu. Stundum með húmor. Stundum með þrjósku. Stundum með óteljandi tárum og stundum með hafragraut í hárinu og köldu kaffi.“

Mynd: Instagram.

Erna segist þreytt en um leið stolt og afar hamingjusöm, erfiðleikarnir hafa gert hana sterkari og um leið mildari.

„Í dag er ég þreytt. En líka stolt. Pínulítið lítil í mér en líka rosalega hamingjusöm og þá aðallega með „litlu“ fjölskylduna mína og fólkið mitt sem stóð í storminum með mér og fólkið sem hefur komið inn í líf mitt í öllum vaxtaverkjunum.

Í dag er ég ekki bara nýútskrifaður Markþjálfi heldur er ég líka sterkari og ekki frá því mildari líka. Bæði fyrir sjálfri mér og lífinu í heild, því þegar ég lærði að ekkert breytist ef maður breytir engu þá vissi ég að það var kominn tími til þess að breyta til og ákvað því að skrá mig í markþjálfanám hjá Profectus og. ég gæti ekki mælt meira með því. Þetta er ekki bara nám, þetta er gjöf.

Ef þú ert að klífa þína eigin brekku með stein í skónum, haltu áfram. Þú ert að gera þetta og áður en þú veist af þá er steinninn farinn, hælsærið er að gróa og sæta gula er farin að láta sjá sig.“

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Erna Kristín (@ernuland)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Enok tjáir sig um fröllu-hneykslið – „Við Birgitta erum góð sko, við erum bara best í heimi“

Enok tjáir sig um fröllu-hneykslið – „Við Birgitta erum góð sko, við erum bara best í heimi“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hildur Líf gerir það gott úti í Arizona

Hildur Líf gerir það gott úti í Arizona
Fókus
Fyrir 3 dögum

Missti vinnuna eftir að hún kvartaði undan feitu fólki í Pilates

Missti vinnuna eftir að hún kvartaði undan feitu fólki í Pilates
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jón lætur Enok heyra það – „Barnið ykkar mun sjá svona hluti“

Jón lætur Enok heyra það – „Barnið ykkar mun sjá svona hluti“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Birtir mynd eftir rúm tvö ár á Mounjaro – „Ég trúi ekki að þetta sé ég núna“

Birtir mynd eftir rúm tvö ár á Mounjaro – „Ég trúi ekki að þetta sé ég núna“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Dramað nær nýjum hæðum: Blokkaði vinkonurnar – „Best að hann fari bara að borða franskarnar sínar“

Dramað nær nýjum hæðum: Blokkaði vinkonurnar – „Best að hann fari bara að borða franskarnar sínar“