fbpx
Sunnudagur 01.júní 2025
Pressan

Handtekinn daginn eftir að hann sótti 21 milljarða lottóvinning

Pressan
Mánudaginn 5. maí 2025 07:00

Lotto balls

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 26. apríl var James Farthing, fimmtugur Kentuckybúi, svo heppinn að vera með allar tölur réttar í ríkislottóinu og fékk í sinn hlut sem svarar til rúmlega 21 milljarðs króna.

Eins og gefur að skilja mætti hann á skrifstofu lottósins til að sækja vinninginn sinn og sat fyrir á mynd með unnustu sinni og móður. Haft var eftir honum í fréttatilkynningu að hann hygðist deila vinningnum með móður sinni því þau kaupi yfirleitt miða saman.

„Þetta verður góður mæðradagur. Ég get borgað skuldir mínar,“ sagði Farthing.

En hugsanlega verður hann að nota hluta af vinningsupphæðinni til að greiða tryggingu fyrir sjálfan sig svo hann losni úr fangelsi.

Ástæðan er að eftir að hann hafði sótt vinninginn lenti hann í deilum við mann á TradeWinds Resort í St Pete Beach í Flórída og er sagður hafa kýlt manninn í andlitið. The Smoking Gun skýrir frá þessu.

Lögreglumaður kom á vettvang og reyndi að skilja mennina að en þá sparkaði Farthing í andlit lögreglumannsins og sást það á upptöku búkmyndavélar lögreglumannsins.

Þegar lögreglumaðurinn skipaði honum að snúa sér við og setja hendur fyrir aftan bak, neitaði Farthing að gera svo og reyndi að hlaupa á brott en náðist og var handtekinn.

Hann var á sakaskrá fyrir og hafði afplánað fangelsisdóm fyrir ótilgreindar sakir.

Hann verður ákærður fyrir líkamsárás gegn lögreglumanni, að hafa streist á móti handtöku og líkamsárás. Hann gat ekki losnað úr fangelsi í síðustu viku þrátt fyrir að trygging upp á 11.500 dollara hafi verið sett fyrir lausn hans. Ástæðan er að hann reyndist eftirlýstur af lögreglunni í Kentucky fyrir að hafa brotið gegn skilorði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

FOX-fréttamaður segist ekkert skilja hvert Trump er að fara

FOX-fréttamaður segist ekkert skilja hvert Trump er að fara
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kona sem ætlaði að fljúga til Berlínar endaði í allt öðru landi

Kona sem ætlaði að fljúga til Berlínar endaði í allt öðru landi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Taívan vill friðsamlega sambúð við Kína en verður að undirbúa sig undir stríð segir forsetinn

Taívan vill friðsamlega sambúð við Kína en verður að undirbúa sig undir stríð segir forsetinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Leikkona vonast til að endurlífga 13 ára son sinn sem lést á föstudag – Er í kapphlaupi við tímann

Leikkona vonast til að endurlífga 13 ára son sinn sem lést á föstudag – Er í kapphlaupi við tímann