fbpx
Mánudagur 18.ágúst 2025
433

Víkingur íhugar að kæra Ólaf fyrir meiðyrði

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 2. mars 2018 18:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Jóhannesson þjálfari Vals ber leikmenn Völsungs og Víkings þungum sökum í viðtal í Návíginu á Fótbolta.net í gær. Þau ummæli vöktu mikla athygli.

Ólafur er að ræða um sumarið 2013 þegar Víkingur vann 16-0 sigur á Völsungi í næst síðustu umferð. Ólafur var að þjálfa Hauka en liðið fór ekki upp vegna markatölu og þá út af þessum leik.

,,Það hefur enginn blaðamaður þorað að fara í þetta vegna þess að það hentar kannski ekki. Ég vil meina að einhverjir hafi verið búnir að semja um úrslitin í þessum leik. Tveir leikmenn Völsungs (Guðmundur Óli og Hrannar Björn Steingrímssynir) eru reknir út af í fyrri hálfleik. Annar fær gult spjald fyrir eitthvað brot, labbar í burtu og fyrst að hann fékk ekki rautt þá sneri hann sér við og sagði dómarnum að þegja eða halda kjafti. Hvað hélt hann að myndi gerast þá? Þetta var ekkert eðlilegt. Við fórum reyndar síðan og unnum Völsung 7-0 í lokaleik en Víkingur fór upp á markatölu,“ sagði Ólafur í viðtalinu á Fótbolta.net.

Ólafur hafði sagt þessi sömu orð í viðtali við 433.is síðasta haust. „Hauka-tímabilið var mjög fínn tími, það er náttúrlega rannsóknarefni fyrir blaðamenn, sem þeir þorðu ekki að fara í frekar en annað, af hverju Haukar fóru ekki upp í efstu deild í fótbolta. Það var allt ólöglegt við þetta sem hægt var, blaðamenn þorðu ekki að fara í það mál,“ sagði Ólafur um málið í samtali við 433.is.

,,Ef Ólafur biðst ekki afsökunar kemur til greina að kæra hann fyrir meiðyrði,
“ sagði Haraldur Haraldsson framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar Víkings við Akraborgina í dag um ummæli Ólafs Jóhannessonar.

Víkingar hafa vísað málinu til KSÍ og krefjast þess að Ólafur biðjist afsökunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Van Dijk vonar innilega að Chiesa verði áfram

Van Dijk vonar innilega að Chiesa verði áfram
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Sammála um að Guardiola hafi logið að öllum í gær

Sammála um að Guardiola hafi logið að öllum í gær
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Enn eitt áfallið fyrir Chelsea

Enn eitt áfallið fyrir Chelsea
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ungur drengur í Bandaríkjunum vekur mikla athygli – Yfirgaf bílinn til að fá áritun frá hetjunni

Ungur drengur í Bandaríkjunum vekur mikla athygli – Yfirgaf bílinn til að fá áritun frá hetjunni
433Sport
Í gær

Daníel Tristan með stórleik og Ísak Snær heldur áfram að skora

Daníel Tristan með stórleik og Ísak Snær heldur áfram að skora
433Sport
Í gær

Ofurtölvan spáir United 12. sæti og Liverpool titlinum

Ofurtölvan spáir United 12. sæti og Liverpool titlinum
433Sport
Í gær

Arteta kannaði málið og allir völdu Ödegaard

Arteta kannaði málið og allir völdu Ödegaard
433Sport
Í gær

Allir í stúkunni stóðu saman og heiðruðu minningu Jota

Allir í stúkunni stóðu saman og heiðruðu minningu Jota