
Trent Alexander-Arnold, leikmaður Real Madrid, segir liðið verða að vinna Meistaradeild Evrópu í vor.
Real Madrid er í frábærri stöðu eftir að hafa unnið Manchester City 3-0 í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum keppninnar í vikunni.
Real Madrid er sigursælasta lið keppninnar og vann síðast 2024. Trent er þó fastur á því að liðið verði að klára hana aftur í ár.
„Við verðum að vinna Meistaradeildina. Þegar þú spilar fyrir Real Madrid eru engar afsakanir. Það skiptir ekki málið hvað er fyrir framan okkur,“ segir Trent.
Seinni leikur City og Real Madrid fer fram á Englandi á þriðjudag.