
Fabian Hurzeler segir að hann hafi sent skilaboð til Mikel Arteta eftir að hafa gagnrýnt leikstíl Arsenal í kringum leik liðanna á dögunum.
Hurzeler sagði að gagnrýnin hafi ekki verið persónuleg og að hann beri mikla virðingu fyrir Arteta og Arsenal.
„Ég sendi honum skilaboð og sagði það sama og ég hef sagt opinberlega, að ég beri mikla virðingu fyrir öllum hjá Arsenal. Ef þeir vinna ensku úrvalsdeildina þá mun ég vera fyrstur til að óska þeim til hamingju, því þá eiga þeir það skilið,“ sagði hann.
Hürzeler bætti þó við að hann standi með skoðunum sínum.
„Það voru bara ákveðin atriði sem vöktu tilfinningar hjá mér. Ég er manneskja sem stendur með sínum prinsippum og skoðunum, jafnvel þó það skapi mikla umræðu.“
Aðspurður hvort Arteta hafi svarað skilaboðunum staðfesti Hürzeler það.
„Já, við áttum góð samskipti. Hann sagði sína skoðun og ég mína. Þetta er fótbolti, hann snýst um tilfinningar og allir reyna að verja sitt lið og sína skoðun.“