fbpx
Mánudagur 09.febrúar 2026
433Sport

Enn aftur og fer hún í stríð við Ian Wright

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 9. febrúar 2026 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eni Aluko hefur kveikt aftur í orðaskiptum sínum við Ian Wright og segir að hún hafi ekki fengið verkefni með honum í fjölmiðlum eftir að hann hafnaði afsökunarbeiðni hennar vegna ummæla um að hann hindraði tækifæri kvenna í sérfræðihlutverkum.

Í apríl í fyrra sagði Aluko að sýnileiki Wright í umfjöllun um kvennafótbolta gæti gert konum erfiðara fyrir að hasla sér völl. Hún hrósaði honum sem sérfræðingi en sagði jafnframt mikilvægt að passa að konur fengju tækifæri í greininni.

Síðar baðst hún opinberlega afsökunar á ummælunum og viðurkenndi að þau hefðu verið mistök. Wright sagðist þó ekki geta tekið afsökunarbeiðninni og Aluko hefur sagt að hún hafi einnig reynt að biðjast afsökunar í einkasamtali.

Nú hefur Aluko tjáð sig á Instagram og sagt að nafn Wright sé enn notað gegn henni, níu mánuðum síðar. Hún gagnrýnir hvernig hann hafi brugðist við málinu og telur að tækifæri hafi gefist til að ræða málið af yfirvegun.

Að hennar sögn hefði Wright getað sýnt þann stuðning sem margir telja hann standa fyrir. Hún segir einlægni sína og auðmýkt hafa mætt virðingarleysi. Málið hefur aftur vakið umræður um stöðu og tækifæri kvenna í íþróttafjölmiðlun en Aluko er dugleg að hjóla í þetta mál.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Birgir Ómar er látinn

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Stjörnuleikmenn United og Liverpool á blaði

Stjörnuleikmenn United og Liverpool á blaði
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Gylfi Þór snýr aftur í íslenska landsliðið

Gylfi Þór snýr aftur í íslenska landsliðið
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Mamman þénar meira en sjö leikmenn liðsins

Mamman þénar meira en sjö leikmenn liðsins
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Piers Morgan og Laura Woods tæta hana í sig fyrir nýjustu ummælin

Piers Morgan og Laura Woods tæta hana í sig fyrir nýjustu ummælin
433Sport
Í gær

Carrick búin að gera eitthvað í tvígang sem Amorim tókst bara einu sinni

Carrick búin að gera eitthvað í tvígang sem Amorim tókst bara einu sinni
433Sport
Í gær

Barcelona segir sig úr Ofurdeildinni og skilur Real Madrid eitt eftir

Barcelona segir sig úr Ofurdeildinni og skilur Real Madrid eitt eftir