
N’Golo Kante fer til Fenerbahce eftir allt saman, en hann hefur rift samningi sínum við Al-Ittihad í Sádi-Arabíu.
Skiptin virtust vera að sigla í strand vegna vandræða við að skrá þau, en tyrkneska félagið og Kante voru óánægð með Al-Ittihad í því máli.
Kante, sem hefur átt glæsilegan feril með Chelsea, Leicester og franska landsliðinu, þrýsti verulega á að fá skiptin í gegn í gærkvöldi og tókst það að lokum.
Youssef En-Nesyri fer í hina áttina, eins og til stóð í upphafi.