

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni á 433.is.
Íslenska kvennalandsliðið tryggði sér þriðja sæti undanriðils síns fyrir HM næsta sumar með öðrum 1-0 sigri á Úkraínu á dögunum en tapaði svo 1-6 heima fyrir heimsmeisturum Spánar.
„Það var farið í svipað upplegg og á móti Englandi en það vantar svolítið Sveindísi og hennar hraða í það kerfi. Það var hlaupið yfir okkur, það verður að segjast alveg eins og er,“ sagði Helgi, en Ísland náði sinni sterkustu frammistöðu í riðlinum í 0-1 tapi gegn Englandi.
„Ég ætla svosem ekki að fella einhvern sleggjudóm eftir þennan leik. Það er kannski frekar spilamennskan yfir lengri tíma sem er áhyggjuefni,“ sagði Hörður og hélt áfram.
„Í þessum riðli eigum við tvo leiki gegn Úkraínu, skyldusigrar, sem við vinnum með minnsta mun. Jákvæði punkturinn er einn hálfleikur á móti Englandi.
Viðbrögð á RÚV og í hlaðvörpum tengjast því mun frekar að þetta hefur ekki verið gott í lengri tíma.“
Þátturinn er í spilaranum.