
Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid, styður, eins og margir, við bakið á Antonin Kinsky, markverði Tottenham, eftir erfiða daga.
Kinsky gerði tvö skelfileg mistök og var tekinn af velli á 17. mínútu í tapi Tottenham gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í vikunni.
„Ég sagði við hann að ég hafi líka gert mistök hjá bæði Atletico og Chelesa. Ég vra líka tvisvar klobbaður af Messi!“ sagði Courtois léttur um málið eftir að hafa rætt við kappann.
„Ég sagði honum að hann þyrfti að læra af þessu. Lífið er erfitt en hann verður að hafa trú á sjálfum sér. Það er eina leiðin.
Staða markvarðar er mjög viðkvæm. Þegar við gerum mistök verður það að marki. Ég vona að Tottenham styðji við bakið á honum og liðsfélgarnir einnig.“