fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
433Sport

Segir Djuric hafa hafnað Blikum og fari í KA – Sagður kosta 18 milljónir og fær betur borgað á Akureyri

433
Fimmtudaginn 12. mars 2026 12:43

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Danijel Djuric, er á leið til KA og hefur hafnað Breiðablik samkvæmt hlaðvarpinu Dr. Football.

„Hann er að fara í KA, hann fer norður. Þriggja ára samningur, þeir kaupa hann,“ sagði Albert Bryjar Ingason í hlaðvarpinu í dag.

Breiðablik og KA hafa verið að eltast við Djuric sem er keyptur frá Istra 1961 í Króatíu.

„Þeir kaupa hann á 18 milljónir, þriggja ára samningur en hann var klár í Blikana. Hann er að fá helmingi hærri laun hjá KA og hann var tilbúinn að taka á sig lægri laun hjá Blikum. Hann testaði þá aðeins, hann fann ekki fyrir því í samningum hversu mikið þeir vildu hann,“ sagði Albert og segir Djuric hafa beðið um treyju númer 10 í Smáranum en ekki fengið hana.

Djuric var frábær hjá Víkingi áður en hann fór til Króatíu þar sem hann fór ekki á flug.

„Hann fann fyrir meiri áhuga hjá KA, hann vildi finna að hann yrði lykilmaður og fann það ekki hjá Blikum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Arsenal virðist hætta við en Manchester liðin hafa áhuga

Arsenal virðist hætta við en Manchester liðin hafa áhuga
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Arsenal horfir á enska landsliðsmanninn sem vill ekki framlengja

Arsenal horfir á enska landsliðsmanninn sem vill ekki framlengja
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þór selur Balde til Vestra – Gerir þriggja ára samning

Þór selur Balde til Vestra – Gerir þriggja ára samning
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Býr enn á hóteli við vinnustaðinn – Flestir vilja láta reka hann eftir 25 daga í starfi

Býr enn á hóteli við vinnustaðinn – Flestir vilja láta reka hann eftir 25 daga í starfi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Telur að þetta hafi vantað hjá enska landsliðinu síðustu ár

Telur að þetta hafi vantað hjá enska landsliðinu síðustu ár
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu
433Sport
Í gær

Telur að leikmaður Chelsea gæti farið til Arsenal

Telur að leikmaður Chelsea gæti farið til Arsenal
433Sport
Í gær

Það skemmtilegasta sem Rooney hefur upplifað frá því ferlinum lauk

Það skemmtilegasta sem Rooney hefur upplifað frá því ferlinum lauk