fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
433Sport

Bjarni lýsir áhyggjum af stöðu mála – „Viðvörunarbjöllur sem klingja“

433
Fimmtudaginn 12. mars 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Helgason, íþróttamaður á Morgunblaðinu, hefur nokkrar áhyggjur af gengi íslenska kvennalandsliðsins undanfarið.

Ísland mætti heimsmeisturum Spánar og Evrópumeisturum Englands á dögunum í fyrstu leikjum undankeppni HM. Báðir leikir töpuðust eins og við var að búast, 3-0 og 2-0.

„Það eru ákveðnar viðvörunarbjöllur sem klingja hjá kvennalandsliðinu í fótbolta, en liðið hefur aðeins unnið tvo af síðustu sautján keppnisleikjum sínum,“ skrifar Bjarni í Morgunblaðið.

„Báðir þessir leikir hefðu hæglega getað endað með 10:0-tapi, miðað við færin sem mótherjar íslenska liðsins fengu. Bæði lið komu mjög framarlega gegn íslenska liðinu og það voru klárlega tækifæri til staðar þegar Íslandi tókst að vinna boltann á eigin vallarhelmingi. Því miður skorti gæðin til þess að gera eitthvað meira úr þeim tækifærum sem liðið fékk.“

Bjarni segir þó erfitt að dæma liðið út frá þessum leikjum en bendir á að leikurinn gegn fjórða liðinu í riðlinum, Úkraínu, verði að vinnast.

„Það er erfitt að ætla sér að dæma spilamennsku liðsins eingöngu út frá leikjunum tveimur gegn Spáni og Englandi, enda eru það líklega bestu kvennalið heims í dag, en staðreyndin er samt sú að spilamennskan tæp síðustu tvö ár hefur verið afar ósannfærandi.

Fram undan er heimaleikur gegn Úkraínu þann 14. apríl og sá leikur verður einfaldlega að vinnast, ætli liðið sér í lokakeppni heimsmeistaramótsins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Vill burt frá Manchester United í sumar

Vill burt frá Manchester United í sumar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Dyche meðvitaður um áhuga Tottenham – Tudor stýrir líklega á Anfield

Dyche meðvitaður um áhuga Tottenham – Tudor stýrir líklega á Anfield
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Kemst yfir sambandsslitin – Byrjaður með Duda sem á frægan pabba

Kemst yfir sambandsslitin – Byrjaður með Duda sem á frægan pabba
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Barcelona skoðar aðra kosti ef ekki næst að semja um Rashford

Barcelona skoðar aðra kosti ef ekki næst að semja um Rashford
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Látin eftir tveggja ára baráttu við krabbamein – Huggun í því að þjáning hennar er á enda

Látin eftir tveggja ára baráttu við krabbamein – Huggun í því að þjáning hennar er á enda
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Byrjaðir að ræða við fyrirliða City sem getur komið frítt í sumar

Byrjaðir að ræða við fyrirliða City sem getur komið frítt í sumar
433Sport
Í gær

Barcelona og Arsenal horfa á sama miðjumanninn

Barcelona og Arsenal horfa á sama miðjumanninn
433Sport
Í gær

Í gæsluvarðhaldi næsta mánuðinn – Meint fórnarlamb gæti misst sjónina

Í gæsluvarðhaldi næsta mánuðinn – Meint fórnarlamb gæti misst sjónina