fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
433Sport

Barcelona skoðar aðra kosti ef ekki næst að semja um Rashford

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 12. mars 2026 12:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barcelona eru sagðir vera farnir að skoða aðra möguleika ef félagið nær ekki samkomulagi um að kaupa Marcus Rashford frá Manchester United í sumar.

Rashford, sem er 28 ára gamall og landsliðsmaður Englands, er nú á láni hjá spænska stórliðinu frá Manchester United. Barcelona hefur áhuga á að gera félagaskiptin varanleg, en viðræður um slíkt samkomulag hafa reynst flóknar.

Samkvæmt spænska miðlinum Marca vill Barcelona tryggja sér fleiri valkosti ef ekki tekst að ná samningi við Manchester United. Félagið er því byrjað að skoða aðra sóknarmenn sem gætu styrkt liðið fyrir næsta tímabil.

Klásúla er í samningi félaganna um að Börsungar geti keypt Rashford á 26 milljónir punda, þeir vilja lækka þann verðmiða. Rashford hefur átt ágætt tímabil hjá Barcelona síðan hann kom til félagsins og hefur lagt sitt af mörkum með mörkum og stoðsendingum.

Framtíð hans er þó enn óljós og mikið gæti ráðist af því hvort félögin ná samkomulagi um kaupverð á leikmanninum áður en félagaskiptaglugginn opnar í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Arsenal virðist hætta við en Manchester liðin hafa áhuga

Arsenal virðist hætta við en Manchester liðin hafa áhuga
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Arsenal horfir á enska landsliðsmanninn sem vill ekki framlengja

Arsenal horfir á enska landsliðsmanninn sem vill ekki framlengja
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þór selur Balde til Vestra – Gerir þriggja ára samning

Þór selur Balde til Vestra – Gerir þriggja ára samning
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Býr enn á hóteli við vinnustaðinn – Flestir vilja láta reka hann eftir 25 daga í starfi

Býr enn á hóteli við vinnustaðinn – Flestir vilja láta reka hann eftir 25 daga í starfi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Telur að þetta hafi vantað hjá enska landsliðinu síðustu ár

Telur að þetta hafi vantað hjá enska landsliðinu síðustu ár
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu
433Sport
Í gær

Telur að leikmaður Chelsea gæti farið til Arsenal

Telur að leikmaður Chelsea gæti farið til Arsenal
433Sport
Í gær

Það skemmtilegasta sem Rooney hefur upplifað frá því ferlinum lauk

Það skemmtilegasta sem Rooney hefur upplifað frá því ferlinum lauk