fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
433Sport

Fyrirliði Tottenham sagður bera einhverja ábyrgð á atvikinu í gær – Bað hann um skiptingu?

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 11. mars 2026 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmenn Tottenham telja að varnarmaðurinn Cristian Romero hafi átt þátt í því að markvörðurinn Antonín Kinský var tekinn af velli snemma í leik gegn Atlético Madrid.

Kinský, sem er tékkneskur landsliðsmarkvörður, var tekinn af velli eftir aðeins 15 mínútur í leiknum eftir röð mistaka í upphafi leiksins. Fyrsta mark Atlético kom þegar Kinský rann til og Marco Llorente nýtti sér það til að koma heimamönnum yfir.

Stuttu síðar bættu Madrídingar við öðru marki þegar Antoine Griezmann skoraði eftir að Mickey van de Ven missti einnig fótanna í varnarlínunni. Kinský gerði svo önnur dýr mistök þegar sending hans frá marki fór illa og Julian Alvarez komst í boltann og skoraði þriðja markið.

Þjálfari Tottenham, Igor Tudor, brást strax við og tók Kinský af velli eftir aðeins stundarfjórðung. Í hans stað kom aðalmarkvörður liðsins, Guglielmo Vicario.

Margir stuðningsmenn Tottenham tóku þó eftir því að Romero hafði stutt samtal við Tudor við hliðarlínuna skömmu áður en skiptingin var gerð. Myndband af atvikinu hefur farið víða á samfélagsmiðlum.

Í myndbandinu sést Romero ganga til Tudor eftir þriðja mark Atlético, hvísla einhverju í eyra hans og ganga svo í burtu. Ekki er ljóst hvað varnarmaðurinn sagði við þjálfarann, en sumir stuðningsmenn telja að hann hafi beðið um skiptingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Góð og slæm tíðindi fyrir Arsenal

Góð og slæm tíðindi fyrir Arsenal
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Tíu knattspyrnumönnum meinað að mæta til leiks í Bandaríkjunum

Tíu knattspyrnumönnum meinað að mæta til leiks í Bandaríkjunum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

De Gea og Rúnar Alex styðja við bakið á Kinsky eftir martröð gærkvöldsins

De Gea og Rúnar Alex styðja við bakið á Kinsky eftir martröð gærkvöldsins