

Cole Palmer verður með Chelsea á morgun sem spilar við Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni.
Eitthvað var fjallað um það í enskum miðlum að Palmer væri meiddur og myndi ekki taka þátt í mikilvægum leik.
Um er að ræða mikilvægasta leikmann Chelsea sem hlaut minniháttar meiðsli í leik gegn Arsenal á dögunum.
Liem Rosenior, stjóri Chelsea, hefur staðfest það að Palmer verði með og að hann sé ekki meiddur.
Leikurinn hefst klukkan 19:30 á morgun á Villa Park.