fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
433Sport

ÍBV staðfestir komu Liam Jeffs frá Þrótti

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 14:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnumaðurinn Liam Daði Jeffs hefur gengið til liðs við ÍBV en hann kemur frá Þrótti Reykjavík, hann gerði fjögurra ára samning við knattspyrnudeildina.

Liam er uppalinn í Vestmannaeyjum en foreldrar hans eru Ian Jeffs og Sigríður Ása Friðriksdóttir sem hafa bæði unnið magnað starf fyrir knattspyrnudeild ÍBV.

Liam verður tvítugur á árinu en hann lék með ÍBV upp alla yngri flokkana, allt þar til hann flutti á höfuðborgarsvæðið á 16. aldursári. Hann var lykilmaður í liði Þróttar á tímabilinu en hann skoraði 10 mörk í þeim 24 leikjum sem hann spilaði með liðinu í Íslandsmótinu þegar Þróttarar rétt misstu af sæti í efstu deild.

Lengi vel var Liam miðjumaður en hann færði sig framar á völlinn síðustu árin sín í yngri flokkunum og var orðinn góður sóknarmaður í 2. flokki þegar hann fór að fá fleiri tækifæri í meistaraflokki Þróttar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Algjörlega óvíst hvenær Wirtz verður leikfær á ný

Algjörlega óvíst hvenær Wirtz verður leikfær á ný
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Rosaleg tekjuaukning í Vesturbæ með tilkomu Óskars Hrafns – Útgjöld jukust um 120 milljónir á síðasta ári

Rosaleg tekjuaukning í Vesturbæ með tilkomu Óskars Hrafns – Útgjöld jukust um 120 milljónir á síðasta ári
433Sport
Í gær

United besta lið Englands á þessu ári – Svona lítur taflan út

United besta lið Englands á þessu ári – Svona lítur taflan út
433Sport
Í gær

Jafnvægi í rekstrinum í Úlfarársdal: Tekjur lækkuðu og útgjöld jukust til muna – Samt var hagnaður á rekstri

Jafnvægi í rekstrinum í Úlfarársdal: Tekjur lækkuðu og útgjöld jukust til muna – Samt var hagnaður á rekstri