fbpx
Mánudagur 09.febrúar 2026
433Sport

Er ekki á þeim buxunum að hætta

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 9. febrúar 2026 14:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eddie Howe, knattspyrnustjóri Newcastle United, segir að hann myndi víkja úr starfi ef hann teldi sig ekki lengur vera rétta manninn til að stýra liðinu áfram.

Ummælin koma í kjölfar 3-2 taps gegn Brentford á heimavelli um helgina, þar sem leikmenn Newcastle voru baulaðir af velli. Liðið er í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og aðeins með einn sigur í síðustu átta leikjum.

„Það er enginn vafi í mínum huga um hvort ég sé rétti maðurinn. Ef ég teldi mig ekki geta gefið liðinu það sem það þarf, þá myndi ég stíga til hliðar. Félagið er alltaf mikilvægara en einstaklingurinn,“ segir Howe hins vegar.

Howe vann deildabikarinn með Newcastle á síðustu leiktíð og hefur skilað frábæru starfi frá því hann kom 2021, en hann viðurkennir að kaflinn núna sé sá erfiðasti hingað til.

Newcastle mætir Tottenham, sem einnig er í miklum vandræðum, í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Birgir Ómar er látinn

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Gylfi Þór snýr aftur í íslenska landsliðið

Gylfi Þór snýr aftur í íslenska landsliðið
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rooney segir stórliðið þurfa að horfast í augu við að vera í fallbaráttu

Rooney segir stórliðið þurfa að horfast í augu við að vera í fallbaráttu
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Piers Morgan og Laura Woods tæta hana í sig fyrir nýjustu ummælin

Piers Morgan og Laura Woods tæta hana í sig fyrir nýjustu ummælin
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Efstur á lista Manchester United

Efstur á lista Manchester United
433Sport
Í gær

Verða nú að kaupa varnarmanninn frá Milan

Verða nú að kaupa varnarmanninn frá Milan
433Sport
Í gær

Styrkja samband sitt eftir gróft framhjáhald – Eiga von á sínu fimmta barni saman

Styrkja samband sitt eftir gróft framhjáhald – Eiga von á sínu fimmta barni saman