
Ítalskir miðlar segja að Joao Cancelo sé að reyna að koma sér aftur til Evrópu.
Cancelo gekk í raðir Al-Hilal í Sádi-Arabíu fyrir síðustu leiktíð en vill aftur í Evrópuboltann og ku Inter hafa mikinn áhuga.
Þessi 31 árs gamli Portúgali hefur áður gert garðinn frægan með stórliðum Manchester City, Barcelona og Juventus en gæti nú tekið annað áhugavert skref.
Cancelo er samningsbundinn Al-Hilal, sem er eitt besta liðið í Sádí, út næstu leiktíð.