Viktor Gyokeres framherji Sporting Lisbon er klár í það að ganga í raðir Manchester United. Enginn Evrópufótbolti hefur ekki áhrif á hann.
Það er Ben Jacobs blaðamaður á Englandi sem fullyrðir þetta.
Sænski framherjinn hefur raðað inn mörkum fyrir Sporting síðustu tvö tímabil en það var Ruben Amorim sem fékk hann þangað.
Vitað er að United vill klófesta framherja. „Gyokeres færi ekki á 300 þúsund pund á viku eða slíkt, ef United getur losað sig við Rashford og Sancho af launaskrá þá hjálpar það til við að fá inn fjármagn í kaup,“ segir Jacobs.
„Það er samkvæmt mínum heimildum að Gyokeres er mjög spenntur fyrir því að fara til United ef þeir hafa fjármuni til að kaupa hann.“