Sir Dave Brailsford hefur dregið sig út úr daglegum rekstri Manchester United og heldur aftur í gamla starf sitt hjá INEOS.
INEOS er fyrirtækið í eigu Sir Jim Ratcliffe sem stýrir öllum hans eignum.
Brailsford hefur starfað hjá United frá degi til dags eftir kaup Ratcliffe og séð um reksturinn fyrir hann.
Fleiri breytingar hafa orðið hjá United síðustu daga en Jason Wilcox er nú orðinn yfirmaður knattspyrnumála.
Wilcox tekur við af Dan Ashworth sem var rekinn úr starfi á síðustu leiktíð. Það er Wilcox sem sér um það að kaupa inn leikmenn til United í sumar.