Imran Louza, leikmaður Watford, er að leitast eftir því að yfirgefa félagið sem hefur komið mörgum stuðningsmönnum félagsins á óvart.
Louza var valinn besti leikmaður Watford í næst efstu deild Englands á síðustu leiktíð og gerði vel undir Tom Cleverley sem stýrði liðinu um tíma.
Louza er vinsæll á meðal stuðningsmanna Watford en hann hefur leikið með liðinu frá árinu 2021.
Samkvæmt enskum miðlum er Louza alls ekki hrifinn af nýjum stjóra Watford, Paulo Pezzolano, sem tók aðeins við fyrir nokkrum vikum.
Louza og Pezzolano eiga enga samleið og er miðjumaðurinn að horfa í kringum sig og eru nokkur félög sem sýna áhuga.
Um er að ræða marokkóskan landsliðsmann sem spilaði alls 37 leiki fyrir Watford í vetur og skoraði tvö mörk.