Matthijs de Ligt varnarmaður Manchester United er að ganga í gegnum skilnað við eiginkonu sína. Enskir miðlar segja frá.
Athygli vakti að De Ligt fór í sumarfrí án hennar og hefur ástæða þess nú komið í ljós.
De Ligt sem er frá Hollandi giftist samlandi sínum Annekee Molenaar í júní í fyrra, hjónabandið er nú á leið í vaskinn.
De Ligt og Annekee Molenaar höfðu verið par í mörg ár og búið saman í Amsterdam, Torino og Munchen áður en þau fluttu til Manchester í fyrra.
De Ligt var keyptur til United fyrir tæpu ári síðan og var lykilmaður í slöku United liði á síðustu leiktíð.