Louis Saha, fyrrum sóknarmaður Manchester United, hefur nefnt tvo ‘egóista’ sem hann telur að geti kvatt félagið í sumar.
United stóðst engan veginn væntingar á síðasta tímabili og hafnaði í 15. sæti ensku deildarinnar og tapaði í úrslitum Evrópudeildarinnar.
Saha er á því máli að sumir karakterar henti ekki United á þeim stað sem félagið er á í dag og nafngreinir tvo sóknarsinnandi leikmenn.
,,Vandamálið er að sumir leikmenn eru ekki með viljann í að koma United á sama stað og félagið var á. Ég get séð Marcus Rashford og Alejandro Garnacho fara,“ sagði Saha.
,,Það er auðvelt fyrir mig að horfa á yngri leikmenn og segja að vandamálið sé þeirra kynslóð en stundum en sambandið bara á endastöð á milli leikmanns og félagsins.“
,,Þetta er ekki tíminn fyrir egóista eða persónuleg vandamál. Ef þú ert með rétt fólk í kringum þig þá mun það segja þér að láta ákveðna hluti ekki hafa áhrif á þig og segja þér jafnvel að þegja í bili, að ná áttum.“