Viðar Örn Kjartansson framherji KA var ekki með liðinu í 1-1 jafntefli gegn Stjörnunni í gær. Framherjinn var meiddur en á að vera klár á næstunni.
Viðar hefur ekki náð að skora í Bestu deildinni í sumar en þessi öflugi framherji fann taktinn seinni hluta síðustu leiktíð. Honum hefur ekki tekist að halda takti.
Mikael Nikulásson fyrrum þjálfari KFA ræddi þetta í Þungavigtinni í dag og tók hann og Gylfa Þór Sigurðsson sem dæmi um leikmenn sem verði að gera betur.
„Hvar er Viðar Örn? Þið eruð að tala mikið um Gylfa Sig, Viðar Örn er ári yngri. Ég veit að Gylfi er einn besti leikmaður í sögu okkar en Viðar er einn mesti markaskorari sem Ísland hefur átt,“ sagði Mikael í Þungavigtinni.
Hann segir bæði þessi félög treysta mikið á þessa leikmenn, Gylfi hefur skorað eitt mark í sumar en eins og fyrr segir hefur Viðar ekki komist á blað í deildinni.
„Víkingur og KA eru að treysta á þessa menn, þetta er ekki nógu gott. Það verður að setja út á þetta.“
„Þeir eru með eitt mark samanlagt í 20 leikjum, það er enginn að segja mér að þessir menn séu að spila frítt hérna.“