fbpx
Miðvikudagur 04.júní 2025
433Sport

Hjörvar var beðinn um að fylgjast með þessu í Kópavogi í gær – „Þetta er einn besti leikþátturinn sem er í gangi í dag“

433
Mánudaginn 2. júní 2025 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dr. Football, Hjörvar Hafliðason var mættur í Kópavoginn í gær þegar Breiðablik vann 3-1 sannfærandi sigur á Víkingum í leik þessara bestu liða landsins.

Víkingur og Breiðablik hafa haft mikla yfirburði í íslenskum fótbolta en Blikar höfðu yfirhöndina í gær.

Hjövar sat í stúkunni og það voru nokkrir Blikar rétt hjá honum sem bentu honum að horfa á varamannabekk Blika ef þeir myndu skora.

„Það var mjög áhugavert stöff í þessum leik, ég sat hjá sérfræðingateymi Blika. Þeir báðu mig að taka eftir því þegar Blikar skora, þá joggar Haraldur Björnsson markmanns þjálfari og kallar „Fókus“. Hann bendir á hausinn á sér og á Anton Ara,“ sagði Hjörvar í þætti sínum í dag.

Hjörvar segir að þetta sé ansi skemmtilegt. „Þetta er einn besti leikþátturinn sem er í gangi í íslenskum fótbolta í dag, hann gerir þetta alltaf.“

Anton Ari Einarsson markvörður Breiðabliks hélt fókusnum vel í gær. „Anton hélt að þetta væri eitthvað merkilegt og kippti sér við, þá kom bara „Fókus“.“

Haraldur er á sínu öðru ári sem markmannsþjálfari Breiðabliks en hann átti farsælan feril með leikmaður bæði í atvinnumennsku og hér á landi með Val og Stjörnunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Eitt stærsta félag í Evrópu hefur áhuga á að kaupa Antony

Eitt stærsta félag í Evrópu hefur áhuga á að kaupa Antony
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Liverpool staðfestir sölu á Caoimhín Kelleher – Hákon Rafn þarf að berjast við hann um stöðuna

Liverpool staðfestir sölu á Caoimhín Kelleher – Hákon Rafn þarf að berjast við hann um stöðuna
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Gæti Bruno verið með annað plan? – Útskýring dagsins opnar möguleika fyrir stærri lið Evrópu

Gæti Bruno verið með annað plan? – Útskýring dagsins opnar möguleika fyrir stærri lið Evrópu
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hjörvar ráðleggur Gylfa hvernig hann getur fundið taktinn – „Þá verður hann að hafa gaman af þessu“

Hjörvar ráðleggur Gylfa hvernig hann getur fundið taktinn – „Þá verður hann að hafa gaman af þessu“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Staðfest að Sancho hafnar Chelsea sem þarf að borga sekt til United

Staðfest að Sancho hafnar Chelsea sem þarf að borga sekt til United
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Bellingham hafnar nokkrum liðum og velur Dortmund

Bellingham hafnar nokkrum liðum og velur Dortmund