FH kynnti í gær glæsilega varatreyju félagsins þar sem félagið mun styrkja samtökin Gleym mér ei.
Gleym mér ei styrktarfélag er til staðar fyrir þau sem missa á meðgöngu og í/eftir fæðingu. Tilgangur félagsins er að styrkja málefni tengt missi barna svo að lítil ljós fái að lifa áfram í minningunni.
Þetta er þriðja árið í röð sem FH gerir slíka treyju og hefur myndbandið sem fylgdi nýju treyjunni vakið mikla athyli.
Þar fer fólk yfir erfiða sögu sína, Ebba Katrín Finnsdóttir les texta og Friðrik Dór syngur.
Þetta má sjá hér að neðan.
Sá fagurblái er mættur 🩵
Í ár stöndum við saman með Gleym mér ei styrktarfélag!Lestur: Ebba Katrín Finnsdóttir
Lag: Friðrik Dór pic.twitter.com/wdI4RXdtPv— FHingar (@fhingar) June 1, 2025