Blaðamaðurinn Ben Jacobs segir að Al-Hilal í Sádí Arabíu vilji fá svör frá Bruno Fernades fyrir föstudag.
Segir í frétt hans að Bruno muni á næstu dögum ræða við fjölskylduna sína hvort hún sé klár í slaginn.
Bruno myndi hækka vel í launum með því að fara frá Manchester United til Sádí Arabíu.
Umboðsmaður hans hefur verið í stífum viðræðum við Al-Hilal sem vilja Bruno með á HM félagsliða.
Málið ætti því að taka á sig skýrari mynd þegar líða tekur á vikuna en Bruno hefur til föstudags til að taka ákvörðun.