Kylian Mbappe framherji Real Madrid hefur verið lagður inn á sjúkrahús í Bandaríkjunum með magabólgu.
Mbappe var ekki með Real Madrid í 1-1 jafntefli gegn Al-Hilal í fyrsta leik liðanna á HM félagsliða.
Mbappe er á sjúkrahúsi í Bandaríkjunum þar sem hann er í meðferðum vegna þessara veikinda.
Real Madrid segir að franski framherjinn fari nú í rannsóknir vegna þess.
Mbappe er á sínu fyrsta ári með Real Madrid sem var nokkuð vonbrigði þar sem liðið vann hvorki deildina né Meistaradeildina.