

„Stundum er ekkert rosalega gott að vera Íslendingur,“ sagði Hjörvar Hafliðason, Dr. Football, í hlaðvarpi sínu á dögunum.
Umræðan spratt út þegar verið að ræða um það að mögulega skiptu þjóðerni máli í hinum stóra heimi fótboltans, frekar en kunnátta.
Hjörvar ræddi þetta í tengslum við Ruben Amorim stjóra Manchester United sem kemur frá Portúgal, var talið ólíklegt að Íslendingur eða Englendingur væru enn í starfi hjá United með sama árangur og hann.
Eiður Smári Guðjohnsen var gestur í þættinum og rifjaði upp feril sinn, þar sem áhorfendur voru ekki alltaf að kaupa íslenskan landsliðsmann.
„Ég skil hvað þú átt við, ég upplifði það þegar ég var að spila. Það fannst öllum áhorfendum aðeins meira sexy að fá landsliðsmann frá Argentínu eða Ítalíu, af því að hann er myndarlegur með dökkt þykkt hár,“ sagði Eiður Smári.
Eiður segir að þetta hafa verið þreytt til lengdar.
„Maður þurfti að standa þessa nýju leikmenn af sér, þetta varð þreytt. Það virkar meira sexy að heita Salas en Eiður.“