
Jean-Philippe Mateta, sóknarmaður Crystal Palace, hefur sannarlega staðið sig vel undir stjórn Oliver Glasner, stjóra liðsins.
Mateta er 28 ára en hefur ferill hans farið á mikið flug undanfarin tvö ár eða svo og er hann til að mynda mættur í franska landsliðið.

Hann varð bikarmeistari með Palace í vor og átti hann stóran hlut í þeim titli. Sem fyrr segir hefur gengi hans, sem og liðsins, verið gott undir stjórn Glasner.
Frá því hann tók við er Mateta nefnilega kominn með 34 mörk í ensku úrvalsdeildinni. Aðeins Mohamed Salah, með 36 mörk, og Erling Braut Haaland, með 46 mörk, hafa skorað fleiri.

Hin virta tölfræðiveita Opta vekur athygli á þessu, eins og sjá má hér að neðan.
Mateta og hans félagar í Palace heimsækja Burnley í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19:30 í kvöld.
34 – Since Oliver Glasner’s first Premier League game in charge of Crystal Palace in February 2024, only Erling Haaland (46) and Mo Salah (36) have scored more Premier League goals than Jean-Philippe Mateta (34). Marksman. pic.twitter.com/p7pha38ylw
— OptaJoe (@OptaJoe) November 30, 2025