fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
433Sport

Þetta í fari Salah og Van Dijk er áhyggjuefni fyrir Liverpool að mati Wayne Rooney

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 28. október 2025 08:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Manchester United og enska landsliðsins, hefur sett spurningamerki við leiðtogana innan liðs Liverpool eftir slæma byrjun liðsins á tímabilinu.

Liverpool tapaði 3-2 fyrir Brentford á laugardagskvöldið og var það fjórði tapleikurinn í röð í ensku úrvalsdeildinni. Liðið hefur einnig tapað á móti Manchester United, Chelsea og Crystal Palace undanfarið.

Arne Slot og leikmenn hans, sem eru ríkjandi meistarar í ensku úrvalsdeildinni, sitja nú í sjöunda sæti deildarinnar og eru sjö stigum á eftir toppliði Arsenal.

Rooney ræddi stöðu Liverpool í hlaðvarpi sínu The Wayne Rooney Show og sagði ástandið vekja áhyggjur. „Fyrir þremur eða fjórum vikum sá enginn þetta fyrir,“ sagði Rooney.

„Þetta hefur komið hratt og það hefur slegið þá illa. Þeir virðast eiga í erfiðleikum með að finna lausn.“

Rooney bendir á að nú sé mikilvægt að leiðtogar liðsins stígi upp. Hann nefnir sérstaklega Virgil van Dijk og Mohamed Salah, sem báðir skrifuðu undir nýja samninga á dögunum.

„Van Dijk og Salah eru helstu lykilmenn liðsins, en mér finnst þeir ekki hafa leitt liðið á vellinum í vetur, hvorki með frammistöðu né líkamstjáningu,“ sagði hann.

„Líkamstjáning segir mikið og nú er eitthvað öðruvísi hjá þeim. Ef þeir sýna ekki rétta orku, þá hefur það áhrif á alla hina.“

Liverpool mætir Crystal Palace í deildarbikarnum á miðvikudag áður en liðið mætir Aston Villa í deildinni um helgina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Vill fá svör um framtíð sína vegna áhuga frá Madríd

Vill fá svör um framtíð sína vegna áhuga frá Madríd
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Vill burt frá Manchester United í sumar

Vill burt frá Manchester United í sumar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir Djuric hafa hafnað Blikum og fari í KA – Sagður kosta 18 milljónir og fær betur borgað á Akureyri

Segir Djuric hafa hafnað Blikum og fari í KA – Sagður kosta 18 milljónir og fær betur borgað á Akureyri
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Kemst yfir sambandsslitin – Byrjaður með Duda sem á frægan pabba

Kemst yfir sambandsslitin – Byrjaður með Duda sem á frægan pabba
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ronaldo fer í sérstaka meðferð á Spáni – Meiðslin alvarlegri en talið var í fyrstu

Ronaldo fer í sérstaka meðferð á Spáni – Meiðslin alvarlegri en talið var í fyrstu
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Látin eftir tveggja ára baráttu við krabbamein – Huggun í því að þjáning hennar er á enda

Látin eftir tveggja ára baráttu við krabbamein – Huggun í því að þjáning hennar er á enda