Fjórir starfsmenn Fiorentina voru í gær fluttir á sjúkrahús eftir að mikill eldur kviknaði á æfingasvæði félagsins.
Ekki kemur fram hvernig eldurinn kviknaði en hann var fljótur að breiðast út.
Fjórir starfsmenn félagsins voru fluttir á sjúkrahús vegna brunans en Albert Guðmundsson leikur með félaginu.
Eldurinn kviknaði í álmu þar sem ungir leikmenn félagsins eyða flestum stundum utan æfinga.
Fiorentina er eitt af stóru liðunum á Ítalíu en Albert er í láni hjá félaginu frá Genoa. Fiorentina hefur forkaupsrétt á íslenska landsliðsmanninum en óvíst er hvort það fari í gegn.