fbpx
Sunnudagur 21.desember 2025
433Sport

Þvert á fréttir hefur Manchester United ekki tekið neina ákvörðun

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 11. mars 2024 10:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur ekki enn tekið neina lokaákvörðun um framtíð Mason Greenwood. Þó er líklegt að félagið sé klárt í að skoða kauptilboð í leikmanninn.

Það er Fabrizio Romano sem segir frá þessu. Framtíð Greenwood hefur verið í umræðunni undanfarið.

Englendingurinn ungi er á láni hjá Getafe frá United og hefur hann staðið sig ansi vel á Spáni. Hann hefur til að mynda vakið athygli Barcelona sem er sagt hafa áhuga á að fá hann.

Samkvæmt fréttum undanfarið á Greenwood enga framtíð hjá United þrátt fyrir að eiga rúmlega ár eftir af samningi sínum þar vegna mála hans utan vallar. Þó segir Romano nú að engin ákvörðun hafi verið tekin.

Sir Jim Ratcliffe og félag hans, INEOS, hafa tekið yfir knattspyrnuhlið United og er beðið eftir þeirra ákvörðun.

Það þykir þó líklegt að Greenwood fari endanlega frá United í sumar og vonast félagið til að fá eitthvað fyrir hann.

Englendingurinn ungi var handtekinn snemma árs 2022 og grunaður um gróft ofbeldi í nánu sambandi. Eftir rúmt ár í rannsókn var málið látið niður falla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Lewandowski og Werner ekki á leiðinni

Lewandowski og Werner ekki á leiðinni
433Sport
Í gær

Sá umdeildi baunar hressilega á bróður stjörnunnar: ,,Hálfvitar í kringum þig og sérstaklega í fjölskyldunni“

Sá umdeildi baunar hressilega á bróður stjörnunnar: ,,Hálfvitar í kringum þig og sérstaklega í fjölskyldunni“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Myndband: Sláandi uppákoma fyrir utan bar – Stjarnan lamdi karl og konu en var buffaður þegar hann reyndi að flýja

Myndband: Sláandi uppákoma fyrir utan bar – Stjarnan lamdi karl og konu en var buffaður þegar hann reyndi að flýja
433Sport
Fyrir 2 dögum

Strákarnir okkar minnast Hareide – „Fyrst og fremst yndisleg manneskja“

Strákarnir okkar minnast Hareide – „Fyrst og fremst yndisleg manneskja“