fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
433Sport

Enski boltinn: Crystal Palace sigraði Tottenham örugglega

Helga Jónsdóttir
Laugardaginn 11. september 2021 13:26

Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Crystal Palace tók á móti Tottenham í 4. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Leiknum lauk með 3-0 sigri Crystal Palace og er þetta þeirra fyrsti sigur á tímabilinu.

Tottenham hafði byrjað tímabilið af krafti og unnið fyrstu þrjá leikina. Tottenham byrjaði leikinn vel en náðu ekki að ógna marki heimamanna og leikmenn Crystal Palace unnu sig hægt og rólega inn í leikinn og voru Zaha og Gallagher hættulegir fram á við.

Þegar um klukkustund var liðin af leiknum fékk Tanganga sitt annað gula spjald og þar af leiðandi rautt spjald. Á 75. mínútu dró til tíðinda er Crystal Palace fékk vítaspyrnu en boltinn fór í hendina á Davies. Zaha tók spyrnuna og sendi Lloris í öfugt horn. Edouard tvöfaldaði forystu Palace aðeins átta mínútum síðar og skoraði þriðja markið í uppbótartíma en þetta var hans fyrsti leikur fyrir félagið. Hann var keyptur á lokadegi félagsskiptagluggans frá Celtic.

Crystal Palace 3 – 0 Tottenham
1-0 W. Zaha (´76)
2-0 O. Édouard (´84)
3-0 O. Édouard (´93)
Tanganga rautt spjald (´59)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Frá Arsenal til Fulham
433Sport
Í gær

Of ungur til að fá að spila fyrir United

Of ungur til að fá að spila fyrir United
433Sport
Í gær

Guardiola segir vonina úti ef illa fer í kvöld

Guardiola segir vonina úti ef illa fer í kvöld
433Sport
Í gær

Carragher segir að þetta sé maðurinn sem United á að ráða til starfa

Carragher segir að þetta sé maðurinn sem United á að ráða til starfa
433Sport
Í gær

Arsenal byrjað að ræða við líklega sinn mikilvægasta leikmann

Arsenal byrjað að ræða við líklega sinn mikilvægasta leikmann
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir lykilmenn til sölu – Áhugi frá Englandi

Tveir lykilmenn til sölu – Áhugi frá Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Grínaðist með að hafa reynt að fá Jóa Berg til að skrifa undir – „Á milli þess sem maður var að skoða sérsveitina var maður aðeins daðra við hann“

Grínaðist með að hafa reynt að fá Jóa Berg til að skrifa undir – „Á milli þess sem maður var að skoða sérsveitina var maður aðeins daðra við hann“