fbpx
Sunnudagur 21.desember 2025
433Sport

Jamie Carragher segir Man City hafa gert mistök á félagsskiptamarkaðnum

Ísak Gabríel Regal
Föstudaginn 20. ágúst 2021 20:27

Jamie Carragher / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnuspekingurinn Jamie Carragher segir að Manchester City hafi forgangsraðað vitlaust í sumar með því að kaupa Jack Grealish í stað Harry Kane. Hann segir jafnframt að Grealish hafi verið góð kaup, en bætir við að Englandsmeistararnir hafi frekar þurft á framherja að halda en miðjumanni.

Carragher trúir því að þessi mistök gætu kostað City titilinn á nýju tímabili. „Grealish mun ekki tryggja Man City Englands- eða Meistaradeildartitilinn, en kaup á Kane eða öðrum framherja í heimsklassa gæti fært þeim þessa titla.“

Hann sagði í grein í The Telegraph að tap City fyrir Tottenham um síðustu helgi bæri vitni um þörf City á framherja. „Það var augljóst í tapinu gegn Tottenham. Þrátt fyrir það keypti City Grealish og beið með kaupin á Kane.“

Carragher er líka ringlaður yfir því hvers vegna City keypti ekki Kane í byrjun sumars þegar þeir bjuggu augljóslega yfir fjármagni til þess.

City áttu augljóslega fyrir Kane í byrjun sumar en ákváðu að virkja 100 milljóna punda klásúluna í samningi Jack Grealish. Eins og stendur virkar eins og þeir hafi forgangsraðað vitlaust. Grealish er góður leikmaður. Hann á eftir að standa sig vel hjá City. Ég skil hvers vegna hann flutti sig yfir,“ sagði Carragher.

Það sem ég skil ekki er hvers vegna City sinntu ekki brýnni þörfum sínum fyrst.“

Guardiola er rólegur yfir gangi mála hjá City þrátt fyrir áhyggjur Carragher. Þegar hann var spurður hvort hann væri sáttur með leikmannahópinn sagði hann: „Já, algjörlega, meira en ánægður. Þetta er sama liðið og í fyrra, fyrir utan að Sergio (Aguero) er farinn og Jack Grealish er kominn í staðinn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Ættu að ná í 41 árs gamlan leikmann til baka – Fáanlegur á frjálsri sölu

Ættu að ná í 41 árs gamlan leikmann til baka – Fáanlegur á frjálsri sölu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir táninginn hafa gert risastór mistök með valinu – ,,Mun aldrei finna sömu ást og hjá okkur“

Segir táninginn hafa gert risastór mistök með valinu – ,,Mun aldrei finna sömu ást og hjá okkur“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Elías Már skrifar undir í Víkinni

Elías Már skrifar undir í Víkinni
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segist eiga óklárað verk í London

Segist eiga óklárað verk í London
433Sport
Fyrir 2 dögum

Úrslitaleikurinn líklega í Madríd

Úrslitaleikurinn líklega í Madríd
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð minnist vinar síns Hareide í hjartnæmri færslu – Rifjar upp hvað hann sagði við hann í London í fyrra

Davíð minnist vinar síns Hareide í hjartnæmri færslu – Rifjar upp hvað hann sagði við hann í London í fyrra