fbpx
Þriðjudagur 07.maí 2024
433Sport

Stólpagrín gert að Tottenham sem kynnti til leiks nýjan styrktaraðila sem gerir mikið úr titlaleysi félagsins

Aron Guðmundsson
Fimmtudaginn 15. apríl 2021 18:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tottenham kynnti í dag nýjan styrktaraðila hjá félaginu til leiks. Málningarfyrirtækið Dulux, er nýr styrktaraðili en samstarfið fór ekki alveg nógu vel af stað.

Stólpagrín hefur verið gert af titlaleysi Tottenham á samfélagsmiðlum eftir að starfsmaður sem hefur aðgang að Twitter-reikningi Dulux, tók að hæðast að titlaleysi félagsins.

David Edwards, stuðningsmaður Tottenham spurði fyrirtækið á Twitter eftir að samstarfið var tilkynnt, hvort að ekki væri hægt að geyma málningarfötur í bikaraskáp Tottenham.

„Þú veist þetta David,“ var svar Dulux á Twitter og með svarinu birtist mynd af tómum bikaraskáp.

Annar notandi Twitter, stakk upp á því að fyrirtækið gæti málað bikaraskápinn.

„Ekki vera kjáni, yfirborðsfletir ættu að vera lausir við allt ryk áður en maður fer að mála,“ var svar Dulux.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segist hafa gert nákvæmlega sömu mistök og Arnar – „Þess vegna segi ég þetta“

Segist hafa gert nákvæmlega sömu mistök og Arnar – „Þess vegna segi ég þetta“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sancho hefur engan áhuga á því að snúa aftur til United

Sancho hefur engan áhuga á því að snúa aftur til United
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

United ekki tapað fleiri leikjum á einu tímabili frá 1978

United ekki tapað fleiri leikjum á einu tímabili frá 1978
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Tvö stórlið á Englandi hafa áhuga á Thomas Tuchel í sumar

Tvö stórlið á Englandi hafa áhuga á Thomas Tuchel í sumar
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Chelsea klárt í að borga rúma 11 milljarða til að fá hann frá Úkraínu

Chelsea klárt í að borga rúma 11 milljarða til að fá hann frá Úkraínu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ógeðfellt atvik náðist á myndband – Blys sprakk í höndum hans og einn fingur sprakk af

Ógeðfellt atvik náðist á myndband – Blys sprakk í höndum hans og einn fingur sprakk af